Fjallagangan - Fjallagangan

Dagsetning

30. apr 2022


Skipuleggjendur

Skíðafélagið í Stafdal

Staðsetning

Egilsstaðir


Viðburðarstjóri

Skíðasamband Íslands

Fjallagangan 2022
Fjallagangan er ganga sem haldin verður í Múlaþingi 30. apríl 2022. Gangan hefst í Stafdal á skíðasvæði Múlaþings. Stafdalur er austanvert í Fjarðarheiði (Seyðisfjarðar megin) og er í um 450 metra hæð yfir sjó. Þar er ágætur skáli og góð aðstaða fyrir keppendur. Austfjarðafjallgarðurinn er alla jafna snjóþungur en fari svo að lítill snjór verði í Stafdal verður ganga flutt upp á Fjarðarheiði í um 600m hæð þar sem öruggt er að nægur snjór verður í lok apríl. Um margar skemmtilegar gönguleiðir er að velja á svæðinu og verður seglum hagað eftir snjóalögum.

Í ár er fyrirhugað að ganga skemmtilega hringleið inn Stafdalinn, um Vestdalvatn sem er í tæplega 600 m.y.s., út að afréttarvatni í Vestdal og til baka aftur í Stafdalinn. Á þessari gönguleið er stórkostleg fjallasýn til allra átta og fallegt útsýni yfir Seyðisfjörð. Styttri gönguleiðirnar byrja og enda í Stafdal. Við höfum mikinn metnað til þess að búa til einstaka og umfram allt skemmtilega skíðagöngu sem ætti að henta trimmurum jafnt sem hörðustu gönguköppum. Aðal markmiðið er að hafa gaman og sigra sjálfan sig. Gangan er síðasta gangan í Íslandsgöngunni, mótaröð Skíðasambandsins.

Boðið upp á heita súpu og hreindýrapate í markinu.

30 km fyrir 17 ára og eldri
Skráningargjald er 8.000kr til og með 20. apríl, eftir það hækkar skráningargjald í 10.000kr. Skráningu líkur 26. apríl kl 21:00.
Allir sem taka þátt í 30 km fá þátttökuverðlaun, en að auki er verðlaunað í verðlaunaflokkum samkvæmt reglum Íslandsgöngunnar.
Drykkjarstöðvar verða á leiðinni.

15 km
Skráningargjald 5.000kr til og með 20. apríl, eftir það hækkar skráningargjald í 7.000kr. Skráningu líkur 26. apríl kl 21:00
Allir sem taka þátt í 15 km fá þátttökuverðlaun, en að auki eru veitt verðlaun fyrir fyrstu þrjá af hvoru kyni.

5 km
Skráningargjald 3.000kr. Skráningu líkur 28. apríl kl. 21:00
Allir sem taka þátt í 5 km fá þátttökuverðlaun.

Dagskrá: Laugardagurinn 30. apríl
Kl 9:00 Afhending keppnisgagna og brautarlýsing í skíðaskálanum í Stafdal
Kl 10:00 Ræsing 30 km
Kl 10:15 Ræsing 5 og 15 km
Veitingar og verðlaunaafhending í mótslok
(tímasetningar geta breyst eftir því sem nær dregur)

Hlökkum til að sjá ykkur á Austurlandi!

Upplýsingar

Grein: Skíðaganga - Hefðbundin aðferð

Tegund: Almenningsmót

Lengd: 45 km

Rástími: 30. apr 2022 kl: 10:00

Flokkar

17 ára og eldri

Úrslit eru væntanleg