Hæfileikamótun í snjóbrettum og skíðafimi - Stubai 29. okt- 8. nóv

Dagsetning

29. okt 2025 - 8. nóv 2025


Skipuleggjendur

Skíðasamband Íslands

Staðsetning

Stubai Austurríki

Hæfileikamótun fer í æfingaferð til Stubai 29. okt-8. nóv fyrir árganga 2007-2012

Þá er komið að þvi að kynna hina einu sönnu pre-season æfingarferð til Austurríkis sem margir bíða spenntir eftir.

Flogið er út að morgni 29.okt kl.7:50 og komið heim 8. nóv kl.16:00

Æfingardagarnir verða 9 talsins. En nánari dagskrá verður auglýst inn á Facebook hóp Hæfileikamótunnar. 

Verð: 345. þús,- kr samtals -  og greiðast 50 þús af því við skráningu. 

Ferðin hefst á Keflavíkurflugvelli þann 29. október og endar 8. nóvember á Keflavíkurflugvelli.

Flogið verður með Icelandair til Munchen og keyrt þaðan til Stubai þar sem gist verður á hótel Schallerhof í 10 nætur. 

Ef veðurguðirnir verða okkur ekki hliðhollir allan tímann þá stefnum við á að fara í Banger Park (https://bangerpark.com/) að æfa ef svo skyldi vera að ekki sé hægt að æfa upp á jökli. (gæti bæst við auka kostnaður þar)

Þjálfarar ferðarinnar eru Jökull Elí Borg, Oddur Vilberg Sigurðsson, Margrét Róbertsdóttir og fleiri ef skráning verður góð. Ennig verður landsliðið okkar á svæðinu á sama tíma og munum við líka njóta góðs af þjálfara þeirra Justin De Graaf.

Mikilvægt er að huga vel að næringu og svefni í svona ferð. Öll neysla áfengis, níkótíns og annara vímuefna er stranglega bönnuð í ferðinni.

Innifalið:

 

Flug - 1 x innrituð taska allt að 23 kg, 1 taska í handfarangri allt að 10 kg og brettaboki

Akstur til og frá flugvelli og á staðnum

Hótel með morgunmat og kvöldmat

Lyftukort

Þjálfarakostnaður

ATH að börnin sjá um hádegisverð sjálf, annaðhvort smyrja þau nesti eða borða á veitingastað á jöklinum. 

Athugið að aðeins verður farið í ferðina ef 8 eða fleiri skrá sig. 

Til þess að vera sem best undirbúin fyrir þessa ferð ráðleggjum við iðkendum að mæti einnig í æfingarbúðir BFH í september sem verða auglýstar síðar. Þar verðu farið yfir ferðina og einnig gefst iðkendum tækifæri til þess að kynnast þjálfurum og hópnum fyrir ferðina. 

Ef spurningar vakna hafið samband við Brynju afreksstjóra SKÍ í síma 846-0420 eða brynja@ski.is

Skráningar

Nafn Félag
Steinunn María Þórarinsdóttir BFH
Arnar Freyr Jóhannsson BFH
Friðbjörg Rós Jakobsdóttir BFH
Sigurður Ægir Filippusson SKA
Garpur Viktorsson DAL
Lukka Viktorsdóttir DAL
Dagrún Katla Ævarsdóttir SKA
Nökkvi Freyr Hjálmarsson SKA
Benjamín Örn Birkisson BFH
Bjarmi Hrannarsson SKA
Lovísa Lilja Friðjónsdóttir DAL
Guðný Jóna Jónsdóttir DAL
Alís Helga Daðadóttir SKA
Óliver Garðarsson BFH
Jökull Bergmann Kristjánsson SKA
Júlíus Evert Jóhannesson SKA
Jóel Orri Jóhannesson SKA
Silja Marinósdóttir SKA
Júlíetta Iðunn Tómasdóttir SKA
Emilía Ingólfsdóttir BFF
Óli Bjarni Ólason SKA
Hafþór Gestur Sverrisson UÍA
Hafliði Sveinsson Zoëga UÍA
Óskar Ingi Heiðarsson BFH
Kristófer Máni Gretarsson SKA
Daney Emma Svansdóttir BFH
Elías Páll Pálsson BFF
Haukur Ingi Guðmundsson BFH
Jón Heiðar Kjærnested BFH