Hæfileikamótun í snjóbrettum til Stubai 5. -14. nóvember 2026

Skráðu þig inn til að skrá þig í viðburð

Dagsetning

5. nóv 2026 - 14. nóv 2026


Skipuleggjendur

Skíðasamband Íslands

Staðsetning

Stubai Austurríki

Æfingaferð Hæfileikamótunar snjóbretta til Stubai 5.–14. nóvember 2026

Árleg haustæfingaferð Hæfileikamótunar í snjóbrettum, 2026, verður farin til Stubai í Austurríki dagana 5. -14. nóvember. 

Flogið er til München að morgni 5.nóv kl.7:20 og komið heim 14.nóv kl.16:00. 

Æfingar

Áætlaðir æfingadagar á jöklinum eru átta. Iðkendum verður skipt í hópa eftir getu og æft verður í einu besta snjóbrettagarði Evrópu með fjölbreyttu úrvali af stökkpöllum, railum og boxum.

Ef aðstæður á jöklinum reynast óhagstæðar vegna veðurs verður stefnt að æfingum í Banger Park Banger Park – Freestyle playground for snowboarders and freeskiers. Athugið að slíkt gæti haft í för með sér aukakostnað.

Þjálfarar ferðarinnar verða:

  • Jökull Elí Borg
  • Oddur Vilberg Sigurðsson

Athugið að fleiri þjálfurum verður bætt við ef skráning er góð.

Farastjóri í ferðinni verður Brynja Þorsteinsdóttir, afreksstjóri SKÍ. 

Hverjir geta tekið þátt?

Ferðin er ætluð snjóbrettaiðkendum fæddum árið 2013 eða fyrr sem eru skráðir í aðildarfélag Skíðasambands Íslands.

Mikilvægar kröfur

Þátttakendur þurfa að:

  • Hafa getu til að renna sér í krefjandi brekkum.
  • Hafa áður farið stökkpalla og rail/box.
  • Vera nokkuð sjálfbjarga í ferðalögum og daglegum verkefnum.

Þjálfarar sjá ekki um að undirbúa iðkendur fyrir fjallið, smyrja nesti eða gæta persónulegra muna. Því er mikilvægt að þátttakendur geti tekið ábyrgð á eigin undirbúningi og fylgt fyrirmælum og mætt á réttum tíma í allt.

Áætlað verð á ferðinni er 315.000-345.000 krónur (fer eftir endanlegum fjölda þátttakenda).

  • 50.000 kr. staðfestingargjald, greitt við skráningu
  • 265.000 - 295.000 kr. greitt fyrir 8. september

Staðfestingargjaldið er óendurkræft. Berist lokagreiðsla ekki fyrir 8. september 2026 getur þátttakandi misst sæti sitt í ferðinni þar sem þá þarf að staðfesta og greiða fyrir flug og aðrar bókanir.

Innifalið í verði

  • Flug með Icelandair til og frá München
    • 1 innrituð taska (allt að 23 kg)
    • 1 handfarangurstaska (allt að 10 kg)
    • Snjóbrettataska
  • Akstur til og frá flugvelli og innan Stubai-svæðisins
  • Gisting á Hótel Schallerhof í 9 nætur
  • Hálft fæði (morgunverður og kvöldverður)
  • Lyftukort
  • Þjálfarakostnaður

Athugið

Hádegisverður er ekki innifalinn. Þátttakendur sjá sjálfir um hádegisverð, annað hvort með því að smyrja nesti eða kaupa sér mat á veitingastöðum á jöklinum.

Ferðin verður aðeins farin ef að lágmarki 6 þátttakendur skrá sig.

Undirbúningur

Til að undirbúa sig sem best fyrir ferðina mælum við með að iðkendur taki einnig þátt í æfingarbúðum hæfileikamótunnar SKÍ og BFH í september, sem verða auglýstar síðar.

Í búðunum verður farið yfir skipulag ferðarinnar og þátttakendum gefst tækifæri til að kynnast þjálfurum og öðrum iðkendum áður en haldið er af stað til Austurríkis.

Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við Brynju í síma 846-0420/brynja@ski.is eða Jökul Elí í síma 773-3238

Skráningar