Samæfing Skíðaskotfimi 22. - 25. október á Hólmavík

Skráðu þig inn til að skrá þig í viðburð

Dagsetning

22. okt 2026 - 25. okt 2026


Skipuleggjendur

Skíðasamband Íslands

Staðsetning

Hólmavík

Dagana 22.-25. október verður haldin samæfing í skíðaskotfimi á Hólmavík fyrir aldur 2010 - 2013  . Á æfingunni verður farið í skotþjálfun ásamt úthalds- og skautaæfingum. Þjálfarar á æfingunni verða Sævar Birgisson, sem vart þarf að kynna en hann átti glæsilegan feril sem skíðagöngumaður og fór meðal annars á ólympíuleikana í Sotsjí. Þórey Dögg Ragnarsdóttir, sem er aðal skotþjálfarinn. Hún er með mikla þekkingu á skíðaskotfimi og fór hún á vegum skíðasambandsins til Lillehammer í æfingabúðir. Einnig er hún bæði skíða- og skotþjálfari hjá Skíðafélagi Strandamanna. Síðast en sýst Ragnar Bragason. Hann er hokinn reynslu sem þjálfari og fór hann einnig til Lillehammer sem skíðaskotfimiþjálfari. Hann mun koma víða að í þjálfuninni á samæfingunni. Skipulag með gistingu og annað mun koma þegar nær dregur.

Kostnaður 30.000kr á mann.  

Með fyrirvara um lágmarks fjölda: 10 

Skráning lýkur 15. október.

Skráningar