Skráningu lýkur 1. nóv 2026 kl: 23:59
Dagsetning
28. des 2026 - 3. jan 2027
Skipuleggjendur
Skíðasamband Íslands
Staðsetning
Beitostølen
Skíðasamband Íslands stendur fyrir árlegri æfingaferð til Noregs um áramótin, dagana 28. desember til 3. janúar. Ferðin er ætluð iðkendum fæddum á árunum 2010–2012, sem eru á hæfileikamótunaraldri, auk iðkenda í afrekshópi SKÍ í skíðagöngu.
Stefnan er tekin á Beitostølen, sem er sannkölluð paradís fyrir skíðagöngufólk. Bærinn er í um 250 km fjarlægð frá Gardermoen-flugvelli, þangað sem flogið verður. Áætlað er að fara með rútu frá flugvellinum til Beitostølen.
Búið er að taka frá hús í bænum, í góðri nálægð við skíðabrautirnar og ekki síður skíðabúðirnar!
Flogið verður út að morgni 28. desember kl.7:50 og heim frá Ósló um hádegi 3. janúar eða kl. 13:10.
Áætlaður kostnaður er 190.000–210.000 kr. á þátttakanda, en endanlegt verð ræðst af fjölda skráðra þátttakenda.
Innifalið í verðinu er flug, innritaður farangur og skíðafarangur, rútuferðir til og frá Beitostølen, gisting og matur. Ferðakostnað innanlands greiðir hver þátttakandi sjálfur.
Staðfestingargjald er 50.000 kr. og greiðist við skráningu. Gjaldið gengur upp í heildarverð ferðarinnar.
Nánari dagskrá og upplýsingar um ferðina verða kynntar þegar skipulagið liggur betur fyrir.
Áramótaferðin er frábært tækifæri fyrir unga skíðagönguiðkendur til að koma sér í gott skíðaform við framúrskarandi aðstæður og njóta samveru með öðrum iðkendum. Við hvetjum alla sem hafa áhuga til að skrá sig!
Nánari upplýsingar veitir:
Brynja, afreksstjóri SKÍ
Netfang: brynja@ski.is
Sími: 846 0420
| Nafn | Félag |
|---|---|
| Viktoría Rós Guseva | SKA |