Skráningu lýkur 18. nóv 2026 kl: 23:59
Dagsetning
5. des 2026 - 8. des 2026
Skipuleggjendur
Skíðasamband Íslands
Staðsetning
Reykjavík, Bláfjöll
Opnað hefur verið fyrir skráningu á Þjálfari 2, þjálfaranámskeið í alpagreinum sem haldið verður dagana 5.–8. desember 2026.
Einar hefur starfað hjá norska skíðasambandinu í 37 ár og hefur yfir 40 ára reynslu af skíðaþjálfun.
Hann hefur meðal annars verið:
Landsliðsþjálfari norska karlalandsliðsins í heimsbikarnum í 6 ár.
Afreksstjóri alpagreina í 4 ár.
Landsliðsþjálfari norska skíðakrosslandsliðsins í 2 ár.
Þjálfari hjá skíðafélögum um árabil.
Námskeiðið er ætlað þjálfurum sem vilja efla þekkingu sína á þjálfun og uppbyggingu ungra keppnisiðkenda, sérstaklega á aldrinum 12–16 ára. Námskeiðið nýtist einnig vel þeim sem þjálfa yngri iðkendur.
Áhersla verður meðal annars lögð á:
Skíðatækni og þjálfunaraðferðir.
Svig, stórsvig og hraðaþjálfun.
Brautarsetningu og fjölbreyttar tækniæfingar.
Myndbandagreiningu.
Langtímauppbyggingu skíðaiðkenda.
Hlutverk þjálfarans og skipulag þjálfunar.
Þrek þjálfun.
Stærstur hluti námskeiðsins fer fram á skíðum með iðkendum, ásamt bóklegri fræðslu og umræðum.
Þátttakendur hafa að einhverju leyti áhrif á hvaða þætti verður lögð sérstök áhersla á. Mikilvægt er að þátttakendur séu virkir, taki þátt í umræðum og nýti tækifærið til að auka eigin þekkingu og hæfni sem þjálfarar.
Stefnt er að því að halda námskeiðið á höfuðborgarsvæðinu. Bókleg kennsla fer fram í sal hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) í Reykjavík og verkleg kennsla í Bláfjöllum.
Tindastóll og Akureyri eru til vara ef aðstæður til skíðakennslu í Bláfjöllum verða ekki nægilega góðar.
Námskeiðsgjald: 12.000 kr. sem greiðist við skráningu
Dagskrá námskeiðsins
Nánari dagskrá verður auglýst á næstu dögum. Gera má ráð fyrir að námskeiðið hefjist laugardaginn 5. desember kl. 08:00 og ljúki þriðjudaginn 8. desember um kl. 17:00.
Við hvetjum alla áhugasama skíðaþjálfara til að skrá sig og nýta þetta frábæra tækifæri til að læra af reynslumiklum þjálfara.