Skráningu lýkur 15. nóv 2026 kl: 00:00
Dagsetning
20. nóv 2026 - 22. nóv 2026
Skipuleggjendur
Skíðasamband Íslands
Staðsetning
Reykjavík, Bláfjöll
Skíðasamband Íslands auglýsir námskeið fyrir skíðaþjálfara í alpagreinum dagana 20.–22. nóvember 2026. Námskeiðið er sérgreinahluti Þjálfara 1 réttinda.
Stefnt er að því að halda námskeiðið í Reykjavík og Bláfjöllum, en staðsetning getur breyst vegna veðurs og aðstæðna. Til vara kemur til greina að halda námskeiðið í Tindastóli eða Hlíðarfjalli.
Æskilegt er að þátttakendur hafi lokið bóklegum hluta Þjálfara 1 hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) áður en námskeiðið hefst.
Föstudagur 20. nóvember | kl. 18:00–21:00
Bókleg kennsla í sal ÍSÍ.
Laugardagur 21. nóvember | kl. 09:00–18:00
Kl. 09:00–13:00 – Verkleg kennsla á skíðum.
Kl. 14:00–18:00 – Bókleg kennsla.
Sunnudagur 22. nóvember | kl. 09:00–17:00
Kl. 09:00–13:00 – Verkleg kennsla á skíðum.
Kl. 14:00–17:00 – Bókleg kennsla.
Dagskrá og staðsetning geta tekið breytingum vegna veðurs og aðstæðna.
Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig sem fyrst, þar sem þeim verður sent námsefni sem nauðsynlegt er að kynna sér fyrir námskeiðið. Einnig þurfa þátttakendur að ljúka krossaprófi úr efninu áður en námskeiðið hefst.
Nánari dagskrá og upplýsingar um fyrirkomulag námskeiðsins verða sendar til þátttakenda.
Nánari upplýsingar veitir Brynja Þorsteinsdóttir á netfanginu brynja@ski.is.
Við hvetjum alla áhugasama skíðaþjálfara til að skrá sig og nýta tækifærið til að efla þekkingu sína og þjálfararéttindi.
| Nafn | Félag |
|---|---|
| Torfi Jóhann Sveinsson | DAL |
| Óskar Valdimar Sveinsson | DAL |
| Ólafur Kristinn Sveinsson | SKA |