Hæfileikamótun SKÍ og SKA í alpagreinum 27.-29. nóv 2026

Skráðu þig inn til að skrá þig í viðburð

Dagsetning

27. nóv 2026 - 29. nóv 2026


Skipuleggjendur

Skíðafélag Akureyrar

Staðsetning

Hlíðarfjalli, Akureyri

Svigæfingabúðir Hæfileikamótunar á Akureyri 27.–29. nóvember 2026

Helgina 27.–29. nóvember verða haldnar svigæfingabúðir Hæfileikamótunar á Akureyri fyrir árganga 2009-2012.

Á æfingabúðunum verður lögð áhersla á að þróa áfram tæknilega færni iðkenda og byggja á þeirri vinnu sem hópurinn vann í æfingabúðunum á Stubai.

Áherslur æfingabúðanna

  • Yfirfæra beygjumódelið sem unnið var með á Stubai yfir í svig.

  • Þjálfa aðskilnað efri og neðri hluta líkamans í svigi.

  • Auka skilning á undirstöðuatriðum línuvals í svigi.

Gisting og innifalið í verði

Hópurinn mun gista í Hálöndum á Akureyri.

Eftirfarandi er innifalið í þátttökugjaldi:

  • Gisting

  • Morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur

  • Lyftukort

  • Aðgangur að sundlaug

  • Þjálfun og fræðsla

  • Samgöngur á milli dagskrárliða innan Akureyrar

Athugið: Þátttakendur þurfa sjálfir að koma með millimál og aukalega orku fyrir æfingar.

Þátttökugjald: 35.000 kr. Greiðist við skráningu. 


Dagskrá æfingabúðanna

Föstudagur 27. nóvember

Tími Dagskrá
17:00 Mæting á gististað
18:00–20:00 Skíðaæfing
20:15 Kvöldnasl í skíðaskála
22:00 Svefn

Laugardagur 28. nóvember

Tími Dagskrá
08:00 Morgunmatur
10:00 Skíðaæfing
12:00 Hádegismatur
13:00 Skíðaæfing
15:00 Næring og hvíld
16:00 Sund
18:00 Kvöldmatur
19:00 Fundur og fræðsla

Sunnudagur 29. nóvember

Tími Dagskrá
08:00 Morgunmatur
10:00 Skíðaæfing
12:00 Hádegismatur
13:00 Skíðaæfing
15:00 Næring
16:00 Heimferð

Við hlökkum til góðrar æfingahelgar á Akureyri þar sem við höldum áfram að byggja upp færni, þekkingu og samheldni hópsins!

Skráningar